top of page

DIXON
LOUNGE

Fágaður Staður Fyrir Meðlimi

OPIÐ

MÁN:
11:30 -19:00
ÞRI:
11:30 - 19:00

MIÐ:
11:30 - 19:00
FIM:
11:30 - 23:30

FÖS:

11:30 - 23:30
LAUG:
11:30 - 23:30

SUN:
ALLIR FARA Í MESSU : LOKAÐ

LAUGAVEGUR 27 - 101 REYKJAVÍK
+ 354 - 5272787 - #27

Dixon Lounge er sérhannaður sérstaklega fyrir þá sem leita að gæðum og rólegu umhverfi þar sem fáguð stemning og persónuleg nálgun er í fyrirrúmi. Staðurinn er eingöngu fyrir meðlimi og bjóðum við upp á þrjár leiðir, þetta er staður þar sem næði og þægindi eru höfð í hávegum.
 

Við bjóðum upp á úrval af sérvöldum vínum, bæði rauðvínum, hvítvínum, rósavínum og kampavínum, frá virtustu og áhugaverðustu vínframleiðendum heimsins. Hvort sem þú kýst léttari eða sterkari drykki, þá tryggjum við að vínúrvalið okkar muni fullnægja þínum kröfum.
 

Á staðurinn er hannaður til að taka viðskiptafundi og einnig er góða að staða til vinnu í opnu og lokuðu rými allt eftir óskum hvers og eins.
 

Við erum einnig stolt af úrvalinu okkar af hágæða kaffi, þar sem áhersla er lögð á mismunandi undirbúningaraðferðir til að hámarka bragðupplifunina. Hvort sem þú kýst klassískt espresso, lungo eða vilt prófa framandi kaffitegundir frá Japan, mun kaffið okkar vera á heimsmælikvarða.
 

Matarúrvalið okkar er hugsað til að fullkomna upplifunina – léttir og framandi réttir, blandaðir við klassíska rétti, eru framreiddir með okkar einstöku fram setningu. Tónlistin í Dixon Lounge er sérvalin valin til að skapa þægilega upplifun, en látlausa stemningu. Öll hljóðvistin er vandlega hönnuð til að tryggja rólegt og friðsælt andrúmsloft, þannig að þú getur notið tíma þíns í fullu næði.
 

Til að tryggja fullkomna upplifun án truflana eru allar myndatökur og samfélagsmiðlar stranglega bannaðir. Dixon Lounge er staður þar sem þú getur slakað á og notið, án áreitis.
 

Komdu og njóttu þar sem ró og friður eru í forgrunni, á Dixon Lounge – staðnum þar sem vín, matur, kaffi og næði mætast.

bottom of page